Vaxtabreyting 15. júlí 2024


Breytilegir vextir þegar veittra neytendalána hækka 30 dögum eftir tilkynningu. Breytilegir vextir annarra lána, yfirdráttarlána og innlána taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.


Breytingarnar eru eftirfarandi:

Verðtryggð íbúðalán
• Íbúðalán I hækka um 0,5 prósentustig
• Íbúðalán II hækka um 0,5 prósentustig

Kjörvextir – Skuldabréfalána
• Amennir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,5 prósentustig

Innlán
Breytilegir verðtryggðir vextir innlánsreikninga breytast um 0 - 0,5 prósentustig


Vaxtabreytingar útlána taka mið af þróun á fjármögnunarkostnaði sparisjóðsins á hverjum tíma, m.a. útlánaáhættu, innlánum viðskiptavina, markaðsfjármögnun og eiginfjárgerningum.


Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.