KEA og allir Sparisjóðir sem starfa á félagssvæði KEA gerðu með sér samning um útgáfu KEA greiðslukorts, debetkorts.
KEA-kortið er afsláttar- og fríðindakort sem veitir félagsmönnum, gegn framvísun, afsláttarkjör hjá fjölda samstarfsaðila.
Almenn KEA kort eru enn í fullu gildi og standa fyrir sínu en sömu kjör bjóðast þeim sem þau hafa að frátöldum vildarkjörum Sparisjóðsins.
Nánar um afslætti samstarfsaðila KEA er að finna á heimasíðu KEA.