Í hvaða gjaldmiðlum get ég sent/móttekið erlendar greiðslur?
Sparisjóðurinn býður uppá erlend viðskipti í eftirfarandi gjaldmiðlum: USD, EUR, GBP, DKK, SEK, NOK, CAD, CHF, JPY
Hvað þarf ég að gera til að hefja erlendar greiðslur hjá Sparisjóðnum?
Áður en fyrsta erlenda greiðslan er send út eða móttekin þurfa viðskiptavinir að sækja um erlend viðskipti hjá sparisjóðunum og fylla út áreiðanleikakönnun. Einstaklingar geta gert það með því að fylla út form í vafra sem má finna undir "Upphaf erlendra viðskipta einstaklingar" hér. Fyrirtækjum er bent á að hafa samband við sinn sparisjóð ef þeir óska eftir að hefja erlend viðskipti.
Hvernig sendi ég út erlenda greiðslu?
Ef viðskiptavinir óska eftir að senda út erlenda greiðslu þarf að fylla út umsókn um erlenda greiðslur. Einstaklingar geta gert það með því að fylla út form í vafra undir "Beiðni um erlenda greiðslu einstaklingar" hér. Fyrirtækjum er bent á að hafa samband við sinn sparisjóð ef þeir óska eftir að senda út erlenda greiðslu. Nánari útlistun á þeim upplýsinum sem þurfa að vera til staðar til að óska eftir greiðslu má finna hér að neðan.
Hægt er að senda/móttaka greiðslur með tveim mismunandi leiðum:
- Local greiðslur: Hér þarf að gefa upp reikningsnúmer viðtakanda (Account Number) og Bank Code/Sort Code banka, en það getur verið breytilegt eftir því hvert er verið að senda greiðsluna hvaða upplýsingar eiga við. Þessi greiðsluleið virkar að hluta til eins og hefðbundar millifærslur en er ekki hægt að nýta sér þessa leið í öllum tilfellum og hentar aðeins fyrir ákveðna gjaldmiðla til ákveðinna landa. Ráðlagt að nota þessa leið fyrir upphæðir undir 5 milljónum ISK . Enginn erlendur bankakostnaður er tekinn af greiðslunni.
- SWIFT greiðslur: Hér þarf að gefa upplýsingar um IBAN númer reiknings og SWIFT númer banka. Þessar greiðslur eru rekjanlegar og hægt er að nota þær í öllum tilfellum. SWIFT greiðslur fara oft í gegnum nokkra banka á leið sinni á áfangastað og er erlendur bankakostnaður er tekinn af greiðslunni. Sparisjóðirnir geta ekki veitt upplýsingar um erlendan bankakostnað fyrirfram þar sem að hann er alfarið ákvarðaður af erlendu bönkunum sem greiðslan fer í gegnum.
Starfsmenn sparisjóðanna geta ráðlagt þér hvort greiðsluleiðin hentar þinni greiðslu betur.
Vakin er athygli á því að Sparisjóðnum ber að tilkynna allar erlendar greiðslur til Seðlabanka Íslands. Því er mikilvæg að viðskiptavinir flokki færslur með viðeigandi hætti þegar óskað er eftir erlendri greiðslu.