Sparisjóðurinn býður fyrirtækjum fjölbreytta möguleika á fjármögnun. Þjónustufulltrúar sparisjóðsins fara yfir málin með þér og aðstoða þig eftir því hvers konar rekstur eða fjárfestingu á að fjármagna hverju sinni.
Sparisjóðurinn býður upp á skuldabréfalán sem eru lán gegn skuldayfirlýsingu og eru þau ýmist verðtryggð eða óverðtryggð. Einnig býður sparisjóðurinn upp á yfirdráttarlán á veltureikninga. Algengt er að lánað sé gegn tryggingu í fasteign eða öðrum veðum, en einnig gegn sjálfskuldarábyrgð.
Reiknivélar eru aðgengilegar á vefsvæði hvers sparisjóðs. Veljið sparisjóð á forsíðu.
Vextir og gjöld eru samkvæmt verðskrá sparisjóðsins.