Aðalfundur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga var haldinn 28. apríl s.l. í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Rekstur sparisjóðsins gekk vel á síðasta ári, hagnaður af starfseminni var rúmar 76 milljónir króna eftir skatta. Um síðustu áramót voru heildareignir sparisjóðsins um 12,3 milljarðar króna og hafa aukist um 1,3 milljarða á milli ára. Innlán voru á sama tíma um 11 milljarðar og jukust þau um 1,1 milljarð á milli ára. Eigið fé sparisjóðsins var 1,1milljarður í árslok og lausafjárstaða er sterk.
Aðalfundurinn samþykkti heimild til stjórnar til að selja nýtt stofnfé að fjárhæð 50 milljónir króna og eiga núverandi stofnfjáreigendur forkaupsrétt til 1. september 2023.
Á aðalfundinum afhenti Örn Arnar Óskarsson sparisjóðsstjóri fulltrúum átta björgunarsveita í Þingeyjarsýslum, styrki samtals að fjárhæð fjórar milljónir króna.
Í stjórn sparisjóðsins voru kjörin Andri B. Arnþórsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Eiríkur H. Hauksson, Gerður Sigtryggsdóttir og Pétur Snæbjörnsson. Varamenn, Helga Sveinbjörnsdóttir og Pétur B. Árnason.