Sparisjóðurinn breytir vöxtum

Breytingarnar eru gerðar í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 19. mars sl. en þá lækkaði Seðlabankinn meginvexti um 0,25 prósentustig.

Útlánavextir

  • Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðlánum lækka um 0,25 prósentustig.
  • Kjörvextir á óverðtryggðum lánum lækka um 0,25 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir lækka um 0,25 prósentustig.

Innlánsvextir

  • Vextir á óverðtryggðum veltureikningum lækka um 0,25 prósentustig.
  • Vextir á óverðtryggðum sparireikningum lækka um 0,25 prósentustig.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af stýrivöxtum Seðlabankans og öðrum fjármögnunarkostnaði sparisjóðsins á hverjum tíma, m.a. útlánaáhættu, innlánum viðskiptavina, markaðsfjármögnun og eiginfjárgerningum.


Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar sem sendar verða í heimabanka viðskiptavina.

Breytingar á vöxtum greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimum mánuðum liðnum í samræmi við skilmála sem gilda um þá reikninga.