Skráðu debit- eða kreditkortið þitt í Google Wallet og byrjaðu að borga með Google Pay!
Google Wallet er stafrænt veski sem geymir kredit- og debetkortin þín á öruggan hátt. Með því að setja kortin þín inní Google Wallet getur þú borgað með símanum með Google Pay.
Hægt er að bæta við öllum einstaklings- og fyrirtækjakortum í Google Wallet.
Google Pay er í boði fyrir korthafa sem hafa náð 13 ára aldri og eru með Android 5,0 tæki eða hærra með innbyggðri NFC virkni.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vef Google.
Þú getur borgað með Google Pay í öllum posum sem styðja snertilausar greiðslur, bæði innanlands og erlendis, í öppum og á vefsíðum.
Leitaðu að merkinu sem táknar snertilausar greiðslur.
Snertilausar greiðslur í verslunum:
Snertilausar greiðslur í öppum og á netinu:
Get ég greitt með snjallúri með Google Pay?
Þú getur tengt kortin þín við Google Wallet og borgað með snjallúrinu þínu svo framarlega sem það styður Wear OS útgáfu 2,0 eða hærri og er með NFC virkni. Þetta á ekki við um Garmin og FitBit úr einfaldlega vegna þess að þeir bjóða upp á eigin greiðslulausnir, Garmin Pay og FitBit Pay.
Hvernig auðkenni ég færslu með Google Pay?
Þú staðfestir færslur með öryggisnúmeri, fingrafaraskanna, andlitsskanna eða snjallúri.
Er öruggt að borga með Google Pay?
Kortanúmerið er ekki vistað á tækinu né á netþjónum Google og því er aldrei deilt með seljandanum. Google Wallet geymir engar upplýsingar um viðskiptin sem hægt er að rekja til þín, sem tryggir öryggi greiðslunnar.
Kostar eitthvað aukalega að nota Google Pay?
Það kostar ekkert aukalega að nota Google Pay, færslugjöld eru þau sömu og á greiðslukortinu sem er tengt við Google Wallet.
Þarf netteningu til að greiða með Google Pay?
Nei, Google Pay þarf aðeins að ná tengingu við posa sem styður snertilausar greiðslur
Hvað geri ég ef ég týni tækinu mínu sem er með kort skráð í Google Wallet?
Hafðu samband við þinn sparisjóð og við aðstoðum þig við að óvirkja sýndarnúmerin á þeim kortum sem tengd eru Google Pay.
Utan opnunartíma sparisjóðanna sinnir neyðarþjónusta Valitor, s. 525-2000, þessari þjónustu.
Ef ég kaupi mér nýjan síma, færast kortin sem ég var með skráð í Google Wallet sjálfkrafa yfir?
Nei. Þú þarft að virkja kortin aftur í Google Wallet í nýja tækinu þínu. Hvert tæki fær úthlutað sérstöku sýndarnúmeri (e. token) sem gildir aðeins fyrir viðkomandi tæki
Get ég verið með kort frá öðrum bönkum en sparisjóðunum í Google Wallet?
Já, það er hægt. Útgefandi kortsins (bankinn) þarf samt sem áður að styðja við Google Wallet.