Sparisjóður Höfðhverfinga hefur undirritað samstarfssamning við kvennalið KA/Þórs í handbolta.
Þetta er eitt af verkefnum á sviði íþrótta- og tómstundamála sem Sparisjóðurinn styrkir í nærumhverfi sínu en hlutverk Sparisjóðsins er að standa vörð um hagsmuni landsmanna, styrkja innviði samfélagsins og styðja við félags- og atvinnulíf í heimabyggð.
"Við erum afskaplega ánægð með að ganga til samstarfs við Sparisjóðinn og hlökkum til samstarfsins. KA/Þór er að ganga í gegnum endurnýjunarferli og eru mörg krefjandi verkefni framundan og skiptir þá öflugur bakhjarlahópur miklu máli ", sagði Stefán Guðnason stjórnarformaður KA/Þór
„Samstarf við kvennalið KA/Þórs smellpassar við sjálfbærnistefnu Sparisjóðsins en hluti af henni tekur á samfélagslegri ábyrgð þar sem við styðjum við íþrótta- og félagsstarf í nærumhverfi okkar. Við óskum KA/Þór góðs gengis í þeim verkefnum sem eru framundan,“ segir Jón Ingvi Árnason sparisjóðsstjóri sparisjóðs Höfðhverfinga.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Jón Ingva Árnason sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Höfðhverfinga og Mörthu Hermannsdóttur handboltakempu og fulltrúa KA/Þórs undirrita samstarfssamninginn.