Greiðsluþjónusta
Láttu okkur sjá um að greiða reikningana!
Greiðsluþjónusta sparisjóðsins er þægileg og örugg þjónusta sem hjálpar til við að ná jafnvægi á útgjaldasveiflur heimilisins. Þjónustufulltrúi gerir greiðsluáætlun þar sem greiðslur eru jafnaðar niður á 12 mánaða tímabil.
Kostir greiðsluþjónustu:
- Jöfn greiðslubyrði yfir árið
- Góð yfirsýn yfir fjármálin og útgjöldin
- Tímasparnaður
- Engin vanskilagjöld
Gott er að yfirfara greiðsluþjónustuna reglulega og sjá til þess að allt sé í lagi. Ýmsar ytri ástæður geta breytt áætluninni s.s. óvæntir reikningar og hækkandi verðbólga.
Kíktu í næsta útibú og fáðu ráðgjöf.