Túngötu 3
610 Grenivík
Glerárgötu 36
600 Akureyri
Sími: 460 9400
Tölvupóstfang: spsh@spsh.is
Kennitala: 590424-1450
Opið er alla virka daga frá 10:00 - 16:00
Sparisjóður Höfðhverfinga á Facebook
Sparisjóður Höfðhverfinga var stofnaður 1. janúar 1879 er hann elsta starfandi fjármálastofnun í landinu. Eins og gefur að skilja hefur starfsemi sjóðsins breyst verulega á þessum tíma. Miklar breytingar urðu á starfsemi hans árið 1972 þegar sjóðurinn fór að bjóða upp á tékkareikningaviðskipti. Í dag er Sparisjóður Höfðhverfinga þjónustufyrirtæki á fjármálasviði sem veitir alla almenna banka- og fjármálaþjónustu.
Árið 1981 flutti sparisjóðurinn í eigið húsnæði og árið 1999 urðu aftur miklar breytingar þegar sjóðurinn keypti og flutti í húsnæði Íslandspósts hf. Um mitt ár 2000 tók sparisjóðurinn við rekstri póstafgreiðslunnar og sinnti henni til janúarloka árið 2005.
Bæði fyrirtæki og einstaklingar eru í viðskiptum við sjóðinn og oftar en ekki eru þeir annaðhvort búsettir á nánasta starfssvæði sjóðsins eða tengjast því með einum eða öðrum hætti.
Sparisjóður Höfðhverfinga hefur gegnum tíðina stutt hvers kyns menningar-, íþrótta- og æskulýðsstarf á starfssvæði sínu.
Umsóknir um styrki og styrktarauglýsingar sendast á netfangið spsh@spsh.is merkt styrkir eða styrktarauglýsingar