Nýlega hefur framleiðslu korta frá Priority Pass verið hætt, og frá og með 10. janúar 2023 mun kortaplast hætta að virka og stafræn kort í gegnum Priority Pass appið koma í staðinn.
Með Priority pass getur þú fengið aðgang að yfir 1.300 betri stofum á yfir 650 flugvöllum í 145 löndum. Þú einfaldlega stofnar aðgang í gegnum vefsíðu Priority Pass og nærð í Priority Pass appið.
- Virkar bæði fyrir aðal- og aukakorthafa
- Aðgangurinn óháður flugfélagi og farrými
- Þú getur notið veitinga, lesið blöð og fengið aðgang að þráðlausu neti
- Afslættir og tilboð í gegnum appið
- Aukin þægindi og þú nýtur ferðarinnar betur
Kynningarmyndband má sjá hér
Leiðbeiningar við nýskráningu
- Á síðu Priority Pass byrjar þú nýskráningu með því að gefa upp 8 fyrstu stafina í kreditkortinu þínu
- Velur Ísland sem þitt svæði (Residence)
- Gefur upp persónuupplýsingar
- Ferð í snjalltækið þitt og sækir Priority Pass appið og skráir þig inn með notendanafninu og lykilorðinu sem þú varst að velja þér
32 USD - Gjald fyrir heimsókn korthafa
32 USD - Gjald fyrir gest korthafa
Heimsóknargjald er skuldfært á kort handhafa í kjölfar hverrar heimsóknar í Priority Pass betri stofu. Ef þú vilt bjóða ferðafélaga með þér greiðir þú sama gjald fyrir gestinn.