Sparisjóðurinn breytir vöxtum eftir lækkun meginvaxta um 0,50 prósentustig

Vaxtabreyting 2. desember í kjölfar stýrivaxtalækkunar 20. nóvember 2024.

Í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands um 0,50 prósentustig þann 5. febrúar 2025 og tekur ný vaxtatafla gildi 18. febrúar 2025.

Breytingar á vöxtum þegar veittra útlána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi 18. mars í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í heimabanka.  Ný sambærileg lán bera nýju vextina.

Breytingar á vöxtum greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum í samræmi við skilmála sem gilda um þá reikninga.

Breytingar á vöxtum greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum í samræmi við skilmála sem gilda um þá reikninga.

Breytingarnar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán
• Íbúðalán I - breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,5 prósentustig og verða 9,65%.
• Íbúðalán II - breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,5 prósentustig og verða 10,75%.

Verðtryggð íbúðalán
Íbúðalán I - breytilegir íbúðalánavextir breytast ekki.

• Íbúðalán II - breytilegir íbúðalánavextir breytast ekki.


Kjörvextir – Skuldabréfalána
• Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,5 prósentustig og verða 10,80%.
• Amennir verðtryggðir kjörvextir breytast ekki.


Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta
• Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga greiðslukorta lækka um 0,5 prósentustig.


Innlán
Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga lækka um allt að 0,5 prósentustig.
Breytilegir óverðtryggðir vextir innlánsreikninga lækka um allt að 0,5 prósentustig.
Breytilegir verðtryggðir vextir innlánsreikninga breytast ekki.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af stýrivöxtum Seðlabankans og öðrum fjármögnunarkostnaði sparisjóðsins á hverjum tíma, m.a. útlánaáhættu, innlánum viðskiptavina, markaðsfjármögnun og eiginfjárgerningum.