Vegna innleiðingar á nýju greiðslu- og innlánakerfi verður óhjákvæmilega röskun á þjónustu sparisjóðanna helgina 18.-20. febrúar. Þrátt fyrir að heimabanki og hraðbankar hafi verið opnaðir á nýjan leik má búast við röskun á þjónustu út daginn.
Frá og með mánudeginum 21. febrúar verða upplýsingar í heimabanka og hraðbönkum orðnar réttar og þjónusta með hefðbundnu sniði. Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þjónustuskerðingin veldur.