Í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands þann 20. nóvember 2024 breytast inn- og útlánavextir sparisjóðsins mánudaginn 2. desember 2024.
Breytilegir vextir þegar veittra verðtryggðra neytendalána hækka 30 dögum eftir tilkynningu. Breytilegir vextir annarra lána, yfirdráttarlána og innlána taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
• Íbúðalán I - breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,5 prósentustig og verða 10,05%
• Íbúðalán II - breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,5 prósentustig og verða 11,15%
• Íbúðalán II - breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 5,30%
Kjörvextir – Skuldabréfalána
• Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,5 prósentustig.
• Amennir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig.
Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta
• Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga greiðslukorta lækka um 0,5 prósentustig
Innlán
Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga lækka um allt að 0,5 prósentustig.
Breytilegir óverðtryggðir vextir innlánsreikninga lækka um allt að 0,5 prósentustig.
Breytilegir verðtryggðir vextir innlánsreikninga hækka um 0,2 prósentustig.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af stýrivöxtum Seðlabankans og öðrum fjármögnunarkostnaði sparisjóðsins á hverjum tíma, m.a. útlánaáhættu, innlánum viðskiptavina, markaðsfjármögnun og eiginfjárgerningum.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.