Nýr Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Austurlands

Þuríður Jónsdóttir hefur verið ráðin sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Austurlands hf, en Vilhjálmur Grétar Pálsson mun láta af því starfi í lok september.

Þuríður er viðskiptafræðingur að mennt, Cand Oceon frá Háskóla Íslands. Hún hefur veitt forstöðu útibúi Deloitte ehf. í Neskaupstað og hóf þar störf árið 1996. Þar hefur hún unnið að fjölbreyttum verkefnum; endurskoðun og ársuppgjörum, stofnun og sölu fyrirtækja, áætlanagerð og skattamálum. Þar áður vann hún hjá Sparisjóðnum. Þuríður hefur víðtæka reynslu og þekkir vel til atvinnulífs á starfssvæði Sparisjóðins og hefur því góða þekkingu á starfsumhverfi hans.

Þuríður er gift Axeli Ísakssyni fjármálastjóra Síldarvinnslunnar hf. og eiga þau einn son. Gert er ráð fyrir að Þuríður hefji störf í júní mánuði næstkomandi.

Stjórn og starfsfólk Sparisjóðs Austurlands bjóða Þuríði velkomna til starfa.

Á myndinni eru Jón Einar Marteinsson formaður stjórnar Sparisjóðsins ásamt Þuríði og Vilhjálmi.