Tilkynning frá Sparisjóðnum vegna dóms Hæstaréttar
Eftir úrskurð Hæstaréttar í dómum þ. 16. júní um fjármögnunarsamninga í íslenskum krónum með gengistryggingu, vilja Sparisjóðirnir koma eftirfarandi á framfæri.
Sparisjóðirnir eiga ekki aðild að þeim málum sem dæmt var í en telja jákvætt að ákveðinni réttaróvissu hafi verið eytt varðandi þessa tegund fjármögnunarsamninga. Starfsmenn sparisjóðanna munu fara ítarlega yfir dómana og fylgjast með þróun mála hjá stjórnvöldum á næstu dögum.
Dómana sem kveðnir voru upp 16.6.2010 má kynna sér hér:
92/2010 Óskar Sindri Atlason (Björn Þorri Viktorsson hrl.) gegn SP. fjármögnun hf. (Sigurmar K. Albertsson hrl.)
153/2010 Lýsing hf. (Sigurmar K. Albertsson hrl.) gegn Jóhanni Rafni Hreiðarssyni og Trausta Snæ Friðrikssyni (Ragnar Baldursson hrl., Ólafur Rúnar Ólafsson hdl.)
Til baka