Um falsaða ferðatékka
Nokkuð hefur borið á fölsuðum 500 EUR ferðatékkum. Fólk fær þá senda í pósti og er það beðið um að skipta þeim og senda síðan 80% af upphæðinni aftur til sendanda. Því vill Sparisjóðurinn ítreka við viðskiptavini sína að vera vakandi fyrir nokkrum sérkennum ósvikinna ferðatékka.
Athugið gaumgæfilega eftirfarandi öryggisþætti:
1. Það á að vera öryggisþráður á miðju tékkans sem gerður er úr málmi. Hann er eingöngu sýnilegur þegar hann er borinn undir ljós.
2. Hér á að vera álmerki. Þegar horft er á merkið flöktir mynd og logo American Express í litum ásamt EUR500
3. Hér á að vera vatnsmerki sem sést eingöngu þegar tékkinn er borinn undir ljós. Ef hann er settur undir UV ljós (blátt ljós) á vatnsmerkið ekki að sjást.

Smellið á myndina til að sjá hana stærri.
Best er að snúa sér til lögreglunnar ef grunur vaknar að ferðatékkinn sé falsaður. Þá getur starfsfólk Sparisjóðsin einnig bent viðskiptavinum sínum á, hvert best sé að leita
Til baka